Psalms 98

1Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefir gjört dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur. 2Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt, fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt. 3Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors. 4Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd, hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið. 5Leikið fyrir Drottni á gígju, á gígju með lofsöngshljómi, 6með lúðrum og básúnuhljómi, látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni. 7Hafið drynji og allt sem í því er, heimurinn og þeir sem í honum lifa. 8Fljótin skulu klappa lof í lófa, fjöllin fagna öll saman 9fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.
Copyright information for Icelandic